146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

vextir og verðtrygging o.fl.

216. mál
[21:08]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Í frumvarpi fjármálaráðherra er verið að bregðast við athugasemdum Eftirlitsstofnunar EFTA um að Ísland sé ekki að standa við EES-samninginn vegna þess að aðilum sem eru varðir gegn gengisáhættu er bannað að taka gengistryggð lán; að bregðast þurfi við þeim athugasemdum. Ekki rétt? Frumvarpið gengur samt eitthvað aðeins lengra en það. Með því er verið að veita efnamesta fólki landsins heimild til að taka erlend lán þó að sama fólk sé ekki sérstaklega varið fyrir gengisáhættu. Nú er það ekki persónulegt metnaðarmál mitt eða Samfylkingarinnar að vera á móti því að fólk njóti erlendra vaxta sem eru auðvitað mun lægri en íslenskir vextir, en það má bara ekki vera á kostnað þeirra sem lakar standa, meginþorra almennings, sem býr við okurvexti sem eru fylgifiskur íslensku krónunnar. Spurning er hvort þetta getur einfaldlega orðið til þess að þeir sem eru efnameiri verði ríkari og þessi ríkisstjórn leggi enn eitt lóð á þær vogarskálar að auka mun fólks hér í landinu.

Sagt hefur verið að ef einn hópur eins og þessi fái undanþágu til að taka erlend lán dragi það úr áhrifamætti hinna háu íslensku vaxta sem leiði til þess að þeir þurfa að hækka enn meira og nógu háir eru þeir nú samt. Þess vegna erum við í Samfylkingunni á móti frumvarpinu. Það felur í sér að verið er að gefa einstökum hópum tækifæri sem almenningi stendur öðru jöfnu ekki til boða og það er frekar ógeðfelld nálgun í allri pólitík.

Umræðan sem átt hefur sér stað varpar óneitanlega ljósi á hversu skaðleg íslenska krónan er og getur verið. Þessir háu vextir eru byrði á heimilum og fyrirtækjum og krónan kallar sífellt á fleiri þjóðhagsvarúðartæki og flækir alla hagstjórn eins og við sjáum glöggt. Við erum ekki að horfa fram í tímann. Við erum ekki að gera áætlanir langt fram í tímann. Við erum miklu frekar alltaf að búa til einhverja umgjörð sem gerir okkur kleift að bregðast við því sem hendir okkur. Hún sveiflast einfaldlega þessi blessaða mynt svo að öll umræðan snýst um það hvort við eigum að þrýsta henni niður eða lyfta henni upp. Hv. þm. Lilja Alfreðsdóttir kom ágætlega inn á það þegar hún vitnar í grein Arion banka þar sem talað er um að krónan sé að verða fullsterk, laun séu sögulega há í alþjóðlegu samhengi og við séum að verða dýrasta land í heimi, en hún geti hins vegar veikst eftir fimm ár. Ef ytri aðstæður herja á ferðaþjónustuna, sem er kannski einn stærsti þátturinn í að krónan er að styrkjast, geti krónan fallið dramatískt.

Við hvers konar aðstæður búum við, frú forseti? Er hæstv. fjármálaráðherra ekki sammála mér um að þetta er ekki æskilegt?

Nú hefur hæstv. fjármálaráðherra komið fram með hugmynd sem gengur út á það að afnema undanþágu ferðaþjónustunnar frá virðisaukahækkun einmitt sem lið í því að reyna að stemma stigu við hækkandi gengi, en það má ekki. Stjórnarliðar hafa lagst í stjórnarandstöðu til að koma í veg fyrir það. Nú kann að vera að ókostir séu við þá aðgerð. Það getur vel verið að við hefðum átt að fara í þá hækkun fyrir fjórum eða sex árum þegar krónan var ekki svona há. En eitthvað þarf að gera.

Ég er ansi hræddur um að hér verði að fara að eiga sér stað umræða um það, algjörlega án fordóma, hvort allt á að snúast um það að vera í vörn. Hér situr hv. þm. Willum Þór Þórsson sem kann knattspyrnutaktík betur en a.m.k. allir hér inni og sennilega flestir þjálfarar landsins. Hann þekkir líka að það getur verið sniðugt að leggjast í vörn ef þú átt eina og eina skyndisókn, en það gengur ekki að vera aldrei í annarri aðstöðu en að bregðast við.

Ég mæli með að hæstv. fjármálaráðherra komi hingað upp og segi mér tíðindi af framtíðaráformum sínum í peningamálastefnu þjóðarinnar.