146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

vextir og verðtrygging o.fl.

216. mál
[21:38]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þingmanni um að ekki er búandi við það fyrir samkeppnishæfni þjóðarinnar og atvinnugreinanna að svona mikið flökt sé á genginu. Ég hef því verið talsmaður þess að ríkisvaldið og Seðlabankinn, stjórnvöld sem fara með þetta mál, fari að beita sér í því með einhverjum skynsamlegum hætti að reyna að minnka þessar sveiflur.

Ég vil spyrja hv. þingmann um það sem ég fór yfir í ræðu minni í gær á eldhúsdegi. Hæstv. fjármálaráðherra vill gjarnan koma Íslandi inn í Evrópusambandið; hann leynir því ekkert, jafnvel ekki í klæðaburði. En með því að láta allt dankast og grípa ekki til þeirra aðgerða sem hugsanlega væru til verður staðan sífellt erfiðari þannig að við lendum kannski aftur í þeirri stöðu sem við horfðum upp á 2009. Þá fóru menn að horfa til þess að eina leiðin út úr því væri evra.

Er það hugsanlegt, að mati þingmannsins, að þetta frumvarp — að klára það hér og nú og veita ákveðinni elítu á Íslandi tækifæri til að forðast okurvexti bankakerfisins og lífeyrissjóðanna á Íslandi, til að mynda við húsnæðiskaup, að hleypa sumum til þess að fara að taka erlend lán á mun lægri vöxtum — sé liður í því að skapa þessa stöðu? Hefur þingmaðurinn velt því fyrir sér hvort það kæruleysi að keyra þetta mál hér í gegn, áður en menn taka á þeim vanda sem gríðarlegar sveiflur á genginu eru, sé hugsanlega meðvituð ákvörðun?