146. löggjafarþing — 75. fundur,  30. maí 2017.

vextir og verðtrygging o.fl.

216. mál
[21:45]
Horfa

Smári McCarthy (P) (andsvar):

Frú forseti. Þetta hljómar eins og enn eitt dæmið um kommúnisma fyrir hina ríku og kapítalisma fyrir hina fátæku, sem er alltaf frekar neyðarlegt ástand; að vísu afskaplega vinsælt hjá ákveðnum aðilum og þeir eru kannski flestir í ríkisstjórn í augnablikinu sem upplifa það sem ágætisniðurstöðu.

Ég hef ekki svar fyrir hv. þingmann um það hver sú upphæð ætti að vera. Kannski ætti maður að miða við krónutölu, kannski við hlutfall af gjaldeyrisvaraforða. Ég hef ekki fengið nein svör þar að lútandi, hvorki frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra né frá Seðlabankanum eða frá neinum öðrum. Kannski er einhver tala til. Reyndar get ég alveg vel hugsað mér að ef sú tala er til þá sé hún vel falin ofan í skúffu. Það er talan sem einhver þyrfti að komast eina krónu yfir til þess að vera orðinn of stór til þess að geta orðið fyrir áfalli eins og sagt er: Too big to fail.

Það er nákvæmlega sú tala plús ein króna, þá er maður búinn að uppfylla það að þurfa aldrei að standa undir láninu sínu. Það er rosalega slæm samsetning.

Ég ætla samt ekki að gefa mér það. Nú höfum við orðið vör við það ansi oft að svona tölur eru ekki til í kerfinu okkar. Oft er ekki búið að meta svona áhættu til fulls eða yfir höfuð. Ég get því alveg ímyndað mér að þessi tala sé heldur ekki greind. Kannski ætti maður að miða við 20% af gjaldeyrisvaraforða, 30%. Ef ég væri Seðlabankinn þá væri ég alla vega í þeirri stöðu núna að ég héldi áfram að kaupa gjaldeyrisvaraforða, fylgdi til dæmis Sviss eftir og yki gjaldeyrisvaraforðann en stoppaði ekki vegna þess að það er bókhaldslega eftirsóknarvert að vera í plús í íslenskum krónum þrátt fyrir einhvern gengishagnað.