jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.
Frú forseti. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann hvort hún væri meðvituð um að ekki liggja fyrir ferlar og viðmið frá ráðuneytinu um hvernig faggildingu vottunaraðila í þessu ferli skuli vera háttað. Getur hún tekið undir þann skilning minn að það sé hreinlega ekki tilbúið í ráðuneytinu hvernig skuli standa að því að faggilda vottunaraðila sem eiga að gera þessa úttekt?
Í öðru lagi spyr ég hvort hv. þingmaður geti tekið undir þann skilning minn að ráðuneytið hyggist bregðast við því að faggildingarsvið Einkaleyfastofu Íslands sé í raun undirmannað til að takast á við þetta verkefni og að við því skuli bregðast með því að gefa vottunaraðilum heimild til að einungis sækja um faggildingu en geta þá hafið vottun. Það er minn skilningur á málinu og ég hef talsverðar áhyggjur af akkúrat því. Mér finnst þetta svolítið eins og að ef maður ætlaði að sækjast eftir lyftaraprófi væri nóg að sækja um það og maður mætti alveg keyra lyftara en þyrfti ekki að taka prófið fyrr en einhvern tíma þegar það væri tilbúið fyrir mann að taka það.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mati mínu. Er það virkilega svo að það sé nóg fyrir vottunaraðila að sækja um faggildingu hjá Einkaleyfastofu til að geta gert þessa úttekt? Ef svo er, hvað þykir hv. þingmanni um það í ljósi þeirra áhyggna sem fram hafa komið um að það þurfi að vera virkilega færir fagaðilar sem fara yfir þetta til þess að þetta mál sé ekki bara hvítþvottur frekar en raunveruleg jafnlaunavottun?