146. löggjafarþing — 76. fundur,  31. maí 2017.

varamenn taka þingsæti.

[13:36]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá 1. þm. Norðvest., Haraldi Benediktssyni, um að hann geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Í dag tekur því sæti sem varamaður fyrir hann 2. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Jónína E. Arnardóttir.

Kjörbréf hennar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

 

[Jónína E. Arnardóttir, 1. þm. Norðvest., undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]