146. löggjafarþing — 76. fundur,  31. maí 2017.

stjórn fiskveiða.

612. mál
[13:48]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Páll Magnússon) (S) (andsvar):

Bara örstutt um þetta atriði. Ég fellst alveg á það sjónarmið að það sé vel athugunarinnar virði, þ.e. með hvaða hætti þeir sem fá úthlutað þessum gæðum nýta þau og hvaða skilmálar eigi að liggja þar að baki. Ég tel hins vegar ekki, eins og ég sagði áðan, að það sé eðlilegur framgangsmáti að það tengist afgreiðslunni á þessu máli að þessu sinni, á þessum tímapunkti.