146. löggjafarþing — 76. fundur,  31. maí 2017.

orkuskipti.

146. mál
[14:16]
Horfa

Ari Trausti Guðmundsson (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Það er full ástæða til að fagna þessari áætlun og þakka fyrir þá vinnu sem að henni hefur lotið í nefndum og annars staðar. Þetta er mjög mikilvægt skref í þá átt að bregðast við loftslagsvánni. Ég vil hvetja til þess að hún sé samþykkt hér samhljóða og minni um leið á skyldu okkar, bæði framkvæmdarvaldsins og löggjafarvaldsins, til að tryggja nægilegt fé til þessa fyrsta skrefs og margra annarra sem fylgja í kjölfarið.