146. löggjafarþing — 76. fundur,  31. maí 2017.

heilbrigðisáætlun.

57. mál
[14:22]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Það er ástæða til að fagna þeirri tillögu sem fram er komin; heildstæð heilbrigðisáætlun sem tekur til alls landsins, landsbyggðar jafnt sem höfuðborgarsvæðis. Við höfum heyrt það í umræðunni í þjóðfélaginu síðustu misserin að á sumum sviðum þessarar þjónustu ríkir allt að því glundroði um veitingu þjónustunnar, þessarar dýrmætu og jafnframt dýru þjónustu. Landsmenn hafa allir mjög sterkar skoðanir á því hvernig við viljum haga þessari þjónustu og vilji landsmanna styrkist. Það hefur verið staðfest með undirskriftarlistum og í nýlegri könnun. Ég vona að ráðherra muni beita sér fyrir því að unnið verði að nýrri heilbrigðisáætlun hratt og örugglega en að ferlið verði allt saman vandað og við fáum að sjá árangurinn sem fyrst.