146. löggjafarþing — 76. fundur,  31. maí 2017.

heilbrigðisáætlun.

57. mál
[14:23]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Óttarr Proppé) (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Ég fagna þessari tillögu enda er hún í takt við stefnu ríkisstjórnarinnar sem kemur fram í stjórnarsáttmála þar sem segir að við munum vinna að heildstæðri heilbrigðisstefnu þar sem horft verði yfir allt heilbrigðiskerfið. Þessi tillaga um heilbrigðisáætlun er mjög í takt við þá vinnu og þá hugsun. Ég fagna henni. Hún kemur inn í vinnuna sem nú þegar er í unnin í ráðuneytinu. Ég fagna samstarfi við hv. velferðarnefnd og Alþingi í þessu mikilvæga máli sem almenningur hefur margsýnt með myndarlegum hætti að er honum efst í huga og er mikið áherslumál, eins og ríkisstjórnin hefur líka tekið fram í stjórnarsáttmála sínum. Takk fyrir.