146. löggjafarþing — 77. fundur,  31. maí 2017.

umgengni um nytjastofna sjávar o.fl.

272. mál
[20:11]
Horfa

Sigurður Ingi Jóhannsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Lykilatriðið í þessu máli er að verið er að koma á leyfisveitingaferli varðandi þessa nýtingu. Þetta er flókið mál á margan hátt og tekur til margra þátta. Þetta eru fyrstu lögin um þetta efni, sem er gott skref sem við Framsóknarmenn styðjum. En það er næsta víst að á næstu árum muni þingið þurfa að fjalla um frekari lagaumgjörð í kringum nýtinguna. En það er gott að taka þetta skref.