jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.
Virðulegi forseti. Þetta mál er hið vandræðalegasta. Það hófst að sjálfsögðu með einhverjum daufum yfirlýsingum frá Viðreisn um patentlausn á launamun kynjanna, náði síðan hápunkti á fundi Sameinuðu þjóðanna með víkingaklappi og hefur síðan bara orðið vandræðalegra og vandræðalegra. Við höfum þurft að taka á móti heilu þingnefndunum, sendinefndum frá öðrum þingum, sem vilja endilega ræða þetta yndislega, frábæra jafnlaunavottunarmál og við þurftum að skila auðu því að frumvarpið var ekki komið fram.
Virðulegi forseti. Þetta mál er engan veginn útrætt. Þetta er ástæðan fyrir því að þingmál eiga stundum að fá að lifa milli þinga. Þetta er eitt af þeim sem myndi ábyggilega verða betra ef betur yrði unnið í því. Þetta er ekki patentlausn gegn launamuni kynjanna. Ég vildi óska að búið væri að vinna þetta mál það vel að ég gæti greitt því atkvæði því að ég held að þetta sé skref í rétta átt. Staðan er einfaldlega þannig að svo er ekki. Það er ekki hægt að greiða þessu atkvæði, því miður.