146. löggjafarþing — 77. fundur,  31. maí 2017.

jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.

437. mál
[21:09]
Horfa

Nichole Leigh Mosty (Bf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil bara beina athygli hv. þingmanna að reynslu þeirra sem hafa farið í gegnum þetta ferli, Tollstjórinn, Landsbankinn og Orkuveitan t.d., og hversu þakklát þau voru fyrir að fara í naflaskoðun hvað varðar kynjamun. Að byrja á laununum var fyrsta skref. Ég segi hér og nú: Það er enginn að segja að hér séum við að leysa allt en við verðum að þora að taka fyrstu skrefin og ég er þakklát fyrir það.