jöfn staða og jafn réttur kvenna og karla.
Frú forseti. Þetta er mikill gleðidagur í sögu Alþingis. Launamisrétti er ljótur blettur á íslensku þjóðinni eins og öllum öðrum samfélögum. Það er vissulega rétt að því verður ekki útrýmt að fullu með þessu frumvarpi. Það eru lög í landinu um að bannað sé að mismuna eftir kyni í launum. En nú erum við að tryggja það, með því að samþykkja þetta frumvarp, að ekki verði misrétti innan neins fyrirtækis sem er yfir ákveðinni stærð. Það er risaskref inn í framtíðina, það er skref sem við getum öll sem styðjum þetta frumvarp verið stolt af. Þetta er ánægjulegur dagur og góður dagur til að byrja fallegt sumar.