146. löggjafarþing — 77. fundur,  31. maí 2017.

kosningar til sveitarstjórna.

258. mál
[21:57]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Hér er um að ræða frumvarp sem hefur það markmið að færa kosningarrétt erlendra ríkisborgara til svipaðs horfs og gerist annars staðar á Norðurlöndunum. Málið fékk ágæta umfjöllun, að mér vitandi, í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og var vel tekið þar. Var að því liðnu ákveðið að vísa málinu til ríkisstjórnar og uni ég vel við þá afgreiðslu málsins.