146. löggjafarþing — 79. fundur,  1. júní 2017.

rannsókn kjörbréfs.

[11:00]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Borist hefur bréf frá varaformanni þingflokks Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs um að Andrés Ingi Jónsson, 10. þm. Reykv. n., geti ekki sinnt þingstörfum á næstunni. Því er óskað eftir því að í dag taki Þorsteinn V. Einarsson sæti á Alþingi en hann er 4. varamaður á lista Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs í kjördæminu. 1., 2. og 3. varamaður á lista í kjördæminu hafa boðað forföll.

Að ósk forseta hefur landskjörstjórn komið saman og gefið út kjörbréf handa Þorsteini V. Einarssyni. Jafnframt hefur stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fundað til þess að fjalla um kjörbréfið.