tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.
Hæstv. forseti. Því er til að svara að hæstv. dómsmálaráðherra lagði ekki þegar störfin voru auglýst mjög skýrar línur um það hvernig þau væru auglýst, enda er það ekki venja í þessum efnum. Það er ekki venja þegar dómarastörf eru auglýst að það sé sundurliðað með hvaða hætti eða hvaða forsendur eru lagðar til grundvallar. Dómsmálaráðherra auglýsti störfin fyrr í vetur lögum samkvæmt. Umsækjendur senda inn sínar umsóknir. Dómnefndin fer lögum samkvæmt yfir umsóknirnar og kemst að sinni niðurstöðu, skilar niðurstöðu til ráðherra sem þá tekur málið til sjálfstæðrar athugunar og skilar síðan tillögum sínum til þingsins 29. maí. Þetta er tímaramminn eða tímalínan ef hv. þingmaður er að velta því fyrir sér. Þannig að hér var ekki um það að ræða eins og manni finnst stundum þegar störf bæði hjá hinu opinbera og einkaaðilum eru auglýst, að búið sé að skrifa nánast einstaklinga inn í embættin með starfslýsingunni sem kemur fram í auglýsingunni, þá er það ekki venjan þegar dómarastörf eru auglýst, heldur er það gert með mjög almennum hætti og ekkert frávik frá því. (Gripið fram í.)
Nefndin sem slík er síðan sjálfstæð og kemst að sinni sjálfstæðu niðurstöðu. Þegar hún hefur skilað af sér er það verkefni dómsmálaráðherra að gera tillögu á grundvelli mats síns á þeim gögnum sem fyrir liggja í málinu og gera tillögu í samræmi við það.