146. löggjafarþing — 79. fundur, 1. júní 2017.
tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.
622. mál
Hæstv. forseti. Ég vil nú fyrst taka fram að ég tel að gífuryrði hv. þingmanns séu fullkomlega tilefnislaus í þessu sambandi. (Gripið fram í.) Varðandi framhald málsins innan stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar mun ég eða einhver annar varamaður í nefndinni taka þátt í þeirri umfjöllun sem þar verður samþykkt að fara út í.