146. löggjafarþing — 79. fundur,  1. júní 2017.

tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.

622. mál
[12:01]
Horfa

Frsm. minni hluta stjórnsk.- og eftirln. (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þykist vita að hv. þingmaður hafi hlustað vel á ræðu mína. Það kom mjög skýrt fram þar að ráðherra er markaður mjög skammur tímafrestur samkvæmt lögunum. Það tók ég skýrt fram í ræðu minni þannig að hv. þingmaður þarf ekkert að leiðrétta það sem ég sagði um það.

Þegar hv. þingmaður nefnir hins vegar að við höfum verið bundin af áformuðum þinglokum þá er honum jafn kunnugt um það og mér að þinglok eru ekki heilagur tími. Þar hljóta þingmenn auðvitað að forgangsraða þeim málefnum sem eru til umræðu fram yfir nákvæmar tímasetningar í starfsáætlun þingsins þótt fyrir hafi legið samkomulag um að ljúka málinu. Ef allir nefndarmenn hefðu verið sammála um að sá rökstuðningur sem lægi fyrir væri algjörlega fullnægjandi og skýrði með fullnægjandi hætti af hverju ráðherra hefði kosið að víkja frá tillögu dómnefndar þannig að allir nefndarmenn hefðu verið sannfærðir um það, nefndarmenn úr ólíkum flokkum, að rannsóknarskylda ráðherra hefði verið uppfyllt, þá hefði vafalaust veri hægt að ljúka málinu á þeim skamma tíma sem hv. þingmaður nefnir. En eins og hv. þingmanni er kunnugt eftir að hafa setið þá fundi sem ég sat líka í nefndinni þá vöknuðu bara ýmsar spurningar, fyrst eftir fyrra bréf ráðherra frá 29. maí, sem að einhverju leyti var svarað í síðara bréfi ráðherra 30. maí, en þá vöknuðu líka spurningar um ólíka röksemdafærslu milli þessara tveggja bréfa. Við sem störfum á Alþingi hljótum að forgangsraða því að vinna málin með viðunandi hætti fremur en að standa undir áætlun um starfslok þingsins. Þannig að ég get ekki tekið undir þau sjónarmið að áætlun um starfslok yfirskipi það að þingmenn vandi málsmeðferð. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)