tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.
Virðulegi forseti. Nei, það má ekki skilja orð hv. þingmanns þannig og eiginlega furðulegt að hv. þingmaður leggi þann skilning í þau. Það sem kom algerlega skýrt fram í máli mínu var að við gerum að sjálfsögðu kröfu til þess að rökstuðningur ráðherra sé fullnægjandi, sama hver tillagan hefði verið. Eins og kom klárlega fram í máli mínu er minni hlutinn algjörlega sammála því að ráðherra hefur heimild til að víkja frá mati dómnefndar svo fremi sem rökstuðningur sé fullnægjandi. Það er ástæðan sem ég fór ítarlega yfir í minni ræðu.
Af því að hv. þingmaður vitnar til þess að ekki hafi þurft að koma á óvart að við værum hér í þinglokum — nei, það kom ekkert á óvart. Það var einmitt þess vegna sem við í minni hlutanum lögðum ítrekað til að þessu máli yrði frestað, þing kæmi saman aftur síðar í þessum mánuði til þess að ljúka við afgreiðslu málsins þannig að þessar aðstæður myndu ekki skapast. (Gripið fram í.)Þeirri tillögu var, ég vil nú ekki segja illa tekið, en henni var ekki tekið af hálfu meiri hluta nefndarinnar. Það útskýrir þá furðulegu aðstæður sem sköpuðust hér í gær þar sem verið er að vinna nefndarálit sem hefði að sjálfsögðu við ídeal aðstæður, svo ég segi það, þurft meiri yfirlegu og meiri undirbúning. Það er sá stakkur sem meiri hlutinn ákvað að sníða minni hlutanum í þessu máli í ljósi þess að ekki var fallist á málefnalegar tillögur minni hlutans um að fresta málinu.