146. löggjafarþing — 79. fundur,  1. júní 2017.

tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.

622. mál
[12:06]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er eitt atriði sem ég vil spyrja hv. þingmann út í sem fram kom í máli hennar og er líka að finna í nefndaráliti minni hlutans. Það er sú fullyrðing sem kemur fram í lok nefndarálitsins að því er haldið fram að ekki sé sýnt að ráðherra hafi sinnt rannsóknarskyldu sinni samkvæmt stjórnsýslulögum. Mig langar til að spyrja: Hvernig rökstyður hv. þingmaður þessa fullyrðingu? Að hvaða leyti hefur rannsóknarskyldunni ekki verið sinnt? Hvað er það sem vantar upp á?

Nú liggur það fyrir að hæstv. ráðherra hefur farið yfir gögn málsins, farið yfir umsóknir, umsögn dómnefndar, andmæli umsækjenda og vinnugögn nefndarinnar sem hún kallaði sérstaklega eftir. Að hvaða leyti vantar upp á rannsóknarskyldu ráðherrans? Hvernig er þessi fullyrðing rökstudd? Það kemur líka fram að hæstv. ráðherra gerir ekki athugasemd við það að dómnefndin hafi ekki uppfyllt sína rannsóknarskyldu. Það er ekki það sem liggur hér til grundvallar. Þegar sagt er að hæstv. ráðherra hafi ekki uppfyllt rannsóknarskyldu sína þá má skilja hv. þingmann þannig að því sé haldið fram að dómnefndin hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni. Ég vil fá útskýringu á þessu, frú forseti.