146. löggjafarþing — 79. fundur,  1. júní 2017.

tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.

622. mál
[12:36]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Það er samt sorglegt að málið skuli vera komið í þennan farveg og að við skulum leyfa okkur að tala með þessum hætti um þessi mál. (Gripið fram í.) Ef ég vitna — ef ég fæ að klára, ég er með orðið — í hv. þingmann þá fullyrðir hann að sérfræðingar hafi sagt nefndinni að rökstuðningur ráðherra hafi verið á einn eða annan hátt. Það er ekki rétt. Sérfræðingar t.d. vöruðu okkur við því að Alþingi ætti ekki að taka að sér rannsókn stjórnsýslumáls. Í þessu máli liggur ekkert fyrir annað en að ráðherra hafi farið að öllum þeim reglum sem henni eru settar og þeim ramma sem er búinn til til þess að fara með þetta mál, til að meta þetta flókna, vandmeðfarna og mikilvæga mál. Það er staðan. Eins og hv. þingmaður talar vildi ég kannski bara fá að spyrja hvort honum finnist að Alþingi eigi að taka þetta mál til sín, að skipa dómara, því að hann talar þannig. Það liggur ekkert annað fyrir en að ráðherra með sínum valdheimildum, innan síns valdaramma, í sínu hlutverki, hafi gert allt það sem lagarammi (Forseti hringir.) biður hana um að gera. Það er Alþingis að meta það almennt. Það hefur nefndin gert, hefur ekki við það athugasemdir en miðað við hvernig hv. þingmaður talar virðist pólitík komin í spilið, sem er mjög vont.