146. löggjafarþing — 79. fundur,  1. júní 2017.

tillögur dómsmálaráðherra um skipun dómara við Landsrétt.

622. mál
[18:16]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Frú forseti. Hv. stjórnarliðar hafa komið hingað upp og lýst þessu sem sögulegum degi. Sögulegum, jú, sorglegum líka. Mér þykir þetta sorgleg stund fyrir þessa samkomu sem gat ekki gefið sér tíma í að vinna þetta mál vel og í sátt, eins og alltaf hefur verið lagt upp með hvað varðar þetta nýja dómstig. Til þess að við gætum líka öll gengið stolt út úr þessu húsi og inn í sumarið. Mér þykir þetta mjög leitt og ég segi nei.