146. löggjafarþing — 79. fundur,  1. júní 2017.

þingfrestun.

[18:41]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

„Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 146. löggjafarþings, frá 31. maí 2017 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 12. september 2017.

Gjört í Reykjavík 29. maí 2017.

Guðni Th. Jóhannesson.

_________________

Bjarni Benediktsson.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 146. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum, starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, ánægjulegra sumardaga.