147. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:30]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Nú flytur hæstv. forsætisráðherra stefnuræðu sína fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og fram munu fara umræður um hana sem verður útvarpað og sjónvarpað héðan úr Alþingishúsinu. Umræðurnar skiptast í þrjár umferðir. Forsætisráðherra hefur 18 mínútur til framsögu en aðrir þingflokkar en þingflokkur forsætisráðherra hafa tíu mínútur í fyrstu umferð, í annarri og þriðju umferð hafa þingflokkarnir fimm mínútur hver.

Röð flokkanna er í öllum umferðum þessi: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri hreyfingin – grænt framboð, Píratar, Framsóknarflokkur, Viðreisn, Björt framtíð og Samfylkingin.

Ræðumenn fyrir Sjálfstæðisflokk verða Bjarni Benediktsson forsætisráðherra í fyrstu umferð, Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra í annarri umferð og Páll Magnússon, 1. þm. Suðurk., í þriðju umferð.

Ræðumenn fyrir Vinstri hreyfinguna – grænt framboð verða Katrín Jakobsdóttir, 2. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, í annarri Steingrímur J. Sigfússon, 3. þm. Norðaust., og í þriðju umferð Kolbeinn Óttarsson Proppé, 6. þm. Reykv. s.

Fyrir Pírata tala Birgitta Jónsdóttir, 3. þm. Reykv. n., í fyrstu umferð, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 10. þm. Suðvest., í annarri umferð og Eva Pandora Baldursdóttir, 5. þm. Norðvest., í þriðju.

Fyrir Framsóknarflokk tala Sigurður Ingi Jóhannsson, 2. þm. Suðurk., í fyrstu umferð, í annarri Lilja Alfreðsdóttir, 9. þm. Reykv. s., og í þriðju umferð Silja Dögg Gunnarsdóttir, 7. þm. Suðurk.

Ræðumenn Viðreisnar verða í fyrstu umferð Benedikt Jóhannesson, fjármála- og efnahagsráðherra, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í annarri og í þriðju umferð Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.

Fyrir Bjarta framtíð tala í fyrstu umferð Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra, í annarri Björt Ólafsdóttir, umhverfis- og auðlindaráðherra, og í þriðju umferð Theodóra S. Þorsteinsdóttir, 12. þm. Suðvest.

Ræðumenn Samfylkingarinnar verða í fyrstu umferð Logi Einarsson, 9. þm. Norðaust., Oddný G. Harðardóttir, 10. þm. Suðurk., í annarri og Guðjón S. Brjánsson, 8. þm. Norðvest., í þriðju umferð.