147. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[19:33]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Hæstv. forseti. Góðir landsmenn. Í kvöld munu þingmenn ræða komandi þingvetur. Við munum horfa á hlutina frá ólíkum sjónarhólum og leggja út frá þeim á mismunandi hátt. Þetta er hluti af hinu pólitíska landslagi og hefur sennilega alltaf verið. Það væri líka til lítils að stefna saman 63 þingmönnum í þennan sal sem væru sammála um alla hluti. Það er í raun eðli lýðræðisins og um leið tilgangur Alþingis að mynda suðupott ólíkra skoðana og leiða fram málefnalega niðurstöðu.

Ég mun hér í kvöld m.a. ræða heilbrigðismál, kjara- og skattamál, lífeyrismál og málefni aldraðra, efnahagsmál og veikleika á vinnumarkaði, sóknarfæri og framtíð ungra Íslendinga sem munu búa við allt annan veruleika í víðu samhengi en fyrri kynslóðir.

Ég mun segja ykkur að við stöndum styrkum fótum og sennilega aldrei sterkar, að við höfum gert margt vel, en við getum gert betur, að það felist mikil ábyrgð í því að spila úr þessari góðu stöðu.

Góðir landsmenn. Um þessar mundir eru staða og horfur í efnahagsmálum einstaklega góðar. Sterkir fiskstofnar og mikill fjöldi ferðamanna, betri viðskiptakjör á erlendum mörkuðum og farsæl lausn á slitabúum og aflandskrónuvandanum hafa styrkt efnahaginn og leyst mikinn kraft úr læðingi. Styrkur krónunni hefur haldið verðlagi í skefjum þrátt fyrir miklar launahækkanir og skapað áður óþekktan kaupmátt launa. Það er þess vegna fyrst og fremst undir okkur sjálfum komið hvernig okkur tekst að viðhalda þeim mikla árangri sem við höfum náð.

Við vitum að engin leið er að koma í veg fyrir sveiflur í náttúrunni, við höfum upplifað það í gegnum tíðina, eða óstöðugleika í alþjóðamálum. Við getum ekki komið í veg fyrir versnandi viðskiptakjör eða aðrar utanaðkomandi aðstæður. Við getum einungis þakkað fyrir að eins og sakir standa leggjast flestir þættir með okkur. Svigrúm í ríkisfjármálum síðustu árin hefur einkum verið nýtt til að greiða upp skuldir og auka útgjöld til velferðarmála. Skuldir ríkissjóðs hafa lækkað um 400 milljarða á síðustu þremur árum, auk þess sem við höfum greitt inn á lífeyrisskuldbindingar okkar. Á sama tíma höfum við styrkt velferð í landinu. Síðustu þrjú árin hafa útgjöld til velferðarmála aukist um 50 milljarða kr. Við munum halda áfram á þessari braut. Ríkisstjórnin starfar eftir þeirri skýru stefnu að efla félagslega innviði.

Það verður hins vegar að hafa þolinmæði til að byggja innviðina upp og það þarf að gerast í samræmi við efni og aðstæður hverju sinni. Á síðasta ári náðist ágæt samstaða hér á Alþingi um verulega bætt kjör aldraðra. Bætur almannatrygginga hafa hækkað mikið á yfirstandandi ári og um næstu áramót munu greiðslur til ellilífeyrisþega frá Tryggingastofnun ná 300.000 kr. á mánuði. Ef við lítum aðeins til baka sjáum við að á árinu 2015 var þessi sama greiðsla 225.000 kr. Á föstu verðlagi er þetta 25% hækkun á einungis þremur árum.

Þetta er að sjálfsögðu veruleg kjarabót á skömmum tíma og hún byggir á árangri í efnahagsmálum en við vitum á sama tíma að enn er verk að vinna. Það sem ríkisstjórnin hefur sett í forgang nú er að lyfta skerðingarþakinu vegna atvinnutekna á þessu kjörtímabili.

Góðir áheyrendur. Það er sérstakt gleðiefni að nú stefnir loks í að á vormánuðum verði tekin fyrsta skóflustungan að meðferðarkjarna nýs Landspítala. Samt sem áður er ljóst að þessi mikla fjárfesting dugir ekki ein til. Álag á sjúkrastofnanir mun ekki hverfa með þessari skóflustungu. Við þurfum að efla uppbyggingu á þjónustu við aldraða sem hafa lagt mikið til þess góða árangurs sem íslenskt samfélag hefur náð á liðnum áratugum. Við þurfum að efla þjónustu við kynslóðina sem lagði grunninn að því sem við tökum í dag sem sjálfsögðum hlut, samgöngu-, mennta- og heilbrigðiskerfi, svo eitthvað sé nefnt.

Við þurfum að gera gangskör að uppbyggingu hjúkrunarheimila. Slík fjárfesting mun að endingu ekki eingöngu gagnast öldruðum, heldur einnig minnka álag á sjúkrastofnanir og greiða götu annarra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu á Íslandi að halda. Góð heilbrigðisþjónusta og jafnt aðgengi allra landsmanna er leiðarljós þessarar ríkisstjórnar.

Góðir landsmenn. Þótt okkur Íslendingum hafi um margt gengið vel að stjórna málum á undanförnum áratugum og árangur náðst á mikilvægum sviðum er það engu að síður svo að gamalgróið sundurlyndi á vinnumarkaði er okkur fjötur um fót. Við stöndum þar nálægum þjóðum langt að baki. Vítin til að varast eru svo mörg að það er ótrúlegt að við skulum leyfa okkur að halda uppteknum hætti. Áttundi og níundi áratugurinn voru samfelld sorgarsaga víxlhækkana launa og verðlags. Þjóðarsáttarsamningarnir leiddu til betri vinnubragða og verðbólga var minni, hún var lítil, en engu að síður hækkuðu laun og verðlag umtalsvert meira en hjá viðskiptaþjóðum okkar. Á síðustu árum hafa launahækkanir náð nýjum hæðum, en samspil ýmissa þátta hefur enn sem komið er komið í veg fyrir að sá árangur tapaðist á verðbólgubáli.

Þegar við leitum góðra fordæma í öðrum löndum sjáum við að það er grundvallaratriði kjaraviðræðna í nágrannalöndunum náð hefja samtalið á því að sammælast um hve mikið laun geta hækkað heilt yfir svo stutt sé við efnahagslegan stöðugleika. Enginn vísir er að slíku samkomulagi hér á landi eftir að það er orðin sérstök íþrótt að tala niður SALEK-samkomulagið og lýsa yfir andláti þess.

Í upphafi þeirrar kjaralotu sem við vitum að er fram undan hefur ríkisstjórnin óskað eftir samstöðu við opinber stéttarfélög um sterkan kaupmátt. Í því felst m.a. hvernig ríkið getur laðað til sín og haldið í hæft starfsfólk, t.d. með skoðun á vinnutilhögun og öðrum þáttum í vinnuumhverfi sem skipta launþega sífellt meira máli. Í þessu felast tækifæri til bættra lífskjara.

Fram undan eru mikilvægir samningar á vinnumarkaði. Allir gera sér grein fyrir því og allir aðilar verða að rísa undir þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir með sama hætti. Augljóst er að ábyrgð fylgir því að semja, en rétturinn til að semja ekki er líka mjög vandmeðfarinn. Þegar farið er út af sporinu í kjaraviðræðum á Íslandi með samningum sem þykja ekki samræmast stöðugleika hefst samkvæmisleikur sem við gætum kallað: Hver er sökudólgurinn?

Hversu oft ætli við höfum tekið þann leik hér í þessum sal að reyna að finna sökudólginn? Fjármálaráðherrann? Einhver fyrri ríkisstjórn? Einhver ráðherrann? Kannski sveitarfélag?

En það er allt of mikil einföldun að skella skuldinni á kröfugerð launþega, einstaka atvinnurekendur eða eftir atvikum, eins og ég nefni, ríkisstjórn eða sveitarfélag sem hefur látið undan þrýstingi um samninga þegar sjálf aðferðafræðin til að leiða fram niðurstöðu er jafn gölluð og raun ber vitni. Leitin að sökudólgnum beinir sjónum okkar frá aðalatriðinu sem er að vinnumarkaðslíkanið á Íslandi er í raun ónýtt.

Ég veit að þetta eru stór orð, en hver getur mótmælt því þegar hver höndin er uppi á móti annarri, jafnvel í upphafi samningalotu? Það er lítil samvinna til staðar og skipulagið í kjaraviðræðum er tilviljanakennt og mjög breytilegt frá einum kjaraviðræðum til þeirra næstu. Það hvað okkur hefur lítið miðað undanfarna áratugi í að bæta úr þessu er stærsti einstaki veikleiki íslenskra efnahagsmála um þessar mundir en þar sem tekist hefur að halda verðbólgu í skefjum um langt skeið hafa allir launþegar notið góðs af launaþróun síðustu ára. Tölur sýna að langtímalaunaþróun hefur verið svipuð á milli einstakra hópa, en í höfrungahlaupinu kemur hvert stéttarfélag með sína útgáfu af stöðunni. Nú verðum við einfaldlega að ná meiri samstöðu um viðmiðunartímabil, bætta launatölfræði og umgjörð utan um kjarasamninga. Við þurfum að koma betra skipulagi á kjaraviðræður þar sem samkeppnishæfni þjóðarbúsins er ráðandi um það svigrúm sem kjarasamningarnir byggjast á.

Góðir landsmenn. Nýlega kom út skýrsla um skattbyrði launafólks frá því um aldamótin. Horft var aftur til ársins 1998. Niðurstaðan var sú að skattbyrði hefði aukist, sér í lagi hjá þeim tekjulægstu. Þetta kann að vera rétt en breytir ekki því að annað sjónarhorn segir miklu meiri sögu. Við mælum framfarir og lífskjarasókn mun betur með því að horfa á þróun ráðstöfunartekna en skattbyrði. Frá árinu 1998 hafa ráðstöfunartekjur sambúðaraðila á lágmarkslaunum með tvö börn hækkað um u.þ.b. þriðjung á föstu verðlagi. Það er sem sagt mun auðveldara að framfleyta sér í dag en það var árið 1998, jafnvel þótt hægt sé að sýna fram á að skattbyrði einstakra tekjuhópa hafi breyst til hins verra. Ég leyfi mér að benda á þetta því að það sem skiptir máli fyrir velferð launafólks er ekki fjárhæð bóta eða skattbyrðiprósentur, heldur þær krónur sem fólk hefur á milli handanna. Það er það sem málið snýst um. Krónunum hefur líka fjölgað. Kjörin hafa stórbatnað og þau hafa batnað með svipuðum hætti hjá öllum tekjuhópum.

Klisjan um vaxandi ójöfnuð lifir góðu lífi í umræðunni. Staðreyndin er þó sú að engin þjóð mælist með meiri launajöfnuð en Ísland samkvæmt árlegri úttekt OECD á jöfnuði meðal þjóða. Því er engu að síður haldið fram að launaójöfnuður sé sjálfstætt vandamál og vaxandi á Íslandi, en sá málflutningur stenst enga skoðun eins og niðurstöður OECD bera skýrt með sér. Það væri nær að beina sjónum að tækifærum til aukinnar verðmætasköpunar og fjölgunar á störfum sem standa undir hærri launagreiðslum. Sterkari samkeppnishæfni landsins mun skila sér í betri kjörum til allra, ekki síst launalægstu hópanna.

Góðir áheyrendur. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar fyrir þetta þing eru vel á annað hundrað þingmál, allt frá peningastefnu og heilbrigðismálum til persónuverndar og sviðslista. Slíkur fjöldi getur gert mönnum torvelt að sjá skóginn fyrir trjánum en stóra myndin er sú að samfélög standa frammi fyrir flóknum hnattrænum áskorunum á sviði umhverfis, loftslags, heilsu, orku, fæðu, fólksflutninga og öryggis.

Sökum örrar þróunar og rannsókna á tækni er nú stundum talað um fjórðu iðnbyltinguna. Breytingarnar munu að öllum líkindum hafa grundvallaráhrif á lífshætti fólks, atvinnu, frístundir og það hvernig fólk tengist hvert öðru. Það er okkur nauðsynlegt að hafa augun á þessari þróun og laga samfélagið að þessum breytingum. Í því felast tækifæri okkar.

Það er lykilatriði fyrir íslenskt samfélag að undirbúa þær kynslóðir sem nú eru að vaxa úr grasi til að takast á við breytt samfélag og vinnumarkað. Ljóst er að ríflega þriðjungur starfa á vinnumarkaði mun breytast mikið eða jafnvel hverfa. Það er jafnframt ljóst að í stað þeirra starfa munu ný störf verða til, störf sem munu krefjast annarrar kunnáttu sem mikilvægt er að við búum komandi kynslóðir undir.

Framþróun og breytingar í menntamálum verða miklar á komandi árum. Hér skiptir öllu að Alþingi og stjórnvöld varði leiðina, sýni raunverulegt þor við að endurskoða menntakerfið og skapa með því nauðsynleg tækifæri fyrir þessar komandi kynslóðir í nýjum veruleika. En þessar breytingar munu ekki eingöngu snerta börnin okkar og framtíð þeirra. Það er líka ljóst að stærstu fyrirsjáanlegu breytingar næstu ára munu einnig koma við þá sem nú þegar eru á vinnumarkaðnum. Starfsfólk á ýmsum sviðum mun á komandi árum og áratugum þurfa að bæta við þekkingu og hæfni sína til að fylgja straumi nýrra tíma. Hér reynir mikið á stjórnvöld, á atvinnulífið, verkalýðshreyfinguna og menntakerfið. Þessi þróun er og verður mikil áskorun sem við verðum að rísa undir og leggja til tíma, kraft og fjármuni.

Góðir landsmenn. Einkunnarorð ríkisstjórnarinnar eru jafnvægi og framsýni. Ríkisstjórnin stundar ábyrg stjórnmál. Hún leggur áherslu á öfluga uppbyggingu innviða og velferðarmála, góðan rekstur ríkisins og að Ísland sé virkur og vel metinn þátttakandi í alþjóðasamfélaginu.

Í augum umheimsins er Ísland fyrirmyndarsamfélag þar sem efnahagsleg velferð er mikil, gæðunum jafnar skipt en annars staðar og jafnrétti og umburðarlyndi ríkir.

Ég hlakka til þessa vetrar sem fram undan er, þeirra fjölmörgu og fjölbreyttu viðfangsefna sem bíða, til samstarfs við fólkið í landinu, við vinnumarkaðinn, við stjórnmálaflokkana og þingmenn. Það er sameiginlegt verkefni okkar allra að verja þann góða árangur sem við höfum náð. Á næsta ári fögnum við 100 ára fullveldisafmæli Íslands. Við ætlum að sækja fram og um leið búa í haginn fyrir framtíðina, grípa tækifærin sem hún ber í skauti sér með viðlíka hætti og þeir sem í upphafi lögðu grunninn að fullveldi og sjálfstæði þjóðarinnar. Þannig tryggjum við bestu mögulegu lífskjör fyrir Íslendinga í bráð og lengd.