147. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[21:41]
Horfa

Eva Pandora Baldursdóttir (P):

Virðulegi forseti. Kæra landsfólk. Mig langar að tala við ykkur um traust. Í vor gerði Gallup könnun meðal landsmanna þar sem traust til ýmissa opinberra stofnana var kannað. Í ljós kom að 22% þjóðarinnar bera traust til Alþingis. 22%! Þetta er hræðileg niðurstaða en kemur þó ekki svo mikið á óvart. Traust almennings til Alþingis náði sögulegri lægð eftir fjármálahrunið 2008 og hefur lítið aukist síðan þá. Af hverju ætli það sé? Er það vegna þess að stjórnmálamenn eru allir í eðli sínu vondir og óheiðarlegir eða er það mögulega vegna þess að á meðan gagnsæi í stjórnsýslunni er ekki meira en raun ber vitni þrífst leyndarhyggja, frændhygli, sérhagsmunagæsla og spilling í skjóli leyndar?

Spilling er að sjálfsögðu ekki áþreifanlegt fyrirbæri og menn eru ekki sammála um rétta skilgreiningu á hugtakinu „spilling“. Það fyrirfinnst eflaust í hugsun spilltra embættis- og stjórnmálamanna að þeir séu alls ekki spilltir af því að þeir hafi aldrei þegið mútur. En spilling er svo miklu víðtækara en mútugreiðslur. Spilling lætur oft lítið fyrir sér fara og eru lög ekki endilega brotin en túlkun reglna er hagrætt til að ná fram ákveðnu markmiði.

Á meðan ekki ríkir gagnsæi er allsendis ómögulegt fyrir almenning að vera upplýstur um ákvarðanatökur og starfsemi stjórnvalda og hefur hann enga haldbæra tryggingu fyrir því að vel sé staðið að ákvörðunum. Allri ábyrgð ætti að fylgja krafa um gagnsæi til þess að opna hina valdameiri gagnvart eftirliti hinna valdaminni.

Í þessu samhengi eru hinir valdameiri ekki endilega alltaf stjórnvöld og hinir valdaminni almenningur heldur á þetta einnig við ríkisstjórnina annars vegar og Alþingi hins vegar. Alþingi hefur nefnilega tilgang, við erum ekki einungis málstofa heldur hefur Alþingi eftirlitshlutverk með framkvæmdarvaldinu. Til að ríkisstjórn sé starfhæf þarf hún að hafa traust meiri hluta Alþingis og bera ábyrgð á ákvörðunum sínum gagnvart Alþingi og þannig fær hún lýðræðislegan grundvöll til að starfa á. Þetta hljómar allt sem gott og blessað en þegar við horfum til þeirrar staðreyndar að hér á Íslandi eru yfirleitt alltaf meirihlutastjórnir og mikil áhersla er lögð á flokkshollustu þingmanna er Alþingi í dag ekki hæft til að sinna eftirlitshlutverki sínu vegna valdníðslu meiri hluta sem hefur minni hluta atkvæða á bak við sig.

Flokkshollustan er svo annað vandamál en dæmi eru um að einstaka þingmenn úr stjórnarmeirihlutanum styðji ekki ákveðin mál en kyngi samt sem áður ælunni og veiti þeim brautargengi til að brjóta ekki á þessari flokkshollustu sem er talin vera svo heilög. Þess vegna er enn mikilvægara að allar ákvarðanatökur stjórnvalda séu gagnsæjar. Einungis með gagnsærri ákvarðanatöku er hægt að meta hvort ákvarðanir voru vel upplýstar og að við þær hafi verið beitt gagnrýninni hugsun. Það er ekki hægt að hafa eftirlit með aðilum sem ástunda ekki gagnsæ vinnubrögð. Maður sér ekki í gegnum svartmálað gler.

Mögulega kunna einhverjir að velta fyrir sér af hverju ég sé að eyða dýrmætum tíma í að tala um Alþingi en staðreyndin er sú að engin alvörustefna, sem á að vera burðarbiti í samfélaginu, mun halda ef Alþingi er stillt upp eins og kökuskrauti á köku sem enginn veit hvað inniheldur. Vandamálin munu halda áfram að hrannast upp og fólk mun á endanum gefast upp og hætta að berjast fyrir sínum lýðræðislegu réttindum og í kjölfarið tekur fólk völd sem ríður um hnarreist á fáki haturs og ótta í nafni réttlætis fyrir suma en ekki alla. Í stað þess að leyfa slíku að gerast verðum við að berjast fyrir því að valdefla almenning.

Fyrsta skrefið í valdeflingu almennings er að endurskoða stjórnarskrá landsins og koma á nýjum samfélagssáttmála. Í frumvarpi stjórnlagaráðs segir í 15. gr., með leyfi forseta:

„Stjórnsýsla skal vera gegnsæ …

Upplýsingar og gögn í fórum stjórnvalda skulu vera tiltæk án undandráttar og skal með lögum tryggja aðgang almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af.“

Að spyrna við fótum á móti nýjum samfélagssáttmála er ekkert annað en íhaldssemi sem snýst um að ríghalda í ímyndaðan stöðugleika. Það íhaldssama fólk treður marvaða og kafar aldrei í djúpin þrátt fyrir fljótandi eldmauraþúfur allt um kring.

Ég legg til að við notum þetta þing til að auka traust og áhuga almennings á Alþingi með því að breyta regluverkinu sem við vinnum eftir. Spilling grefur undan lýðræði og vernd mannréttinda, veikir hagkerfið, hefur skaðleg áhrif á viðskiptalíf, veikir stjórnsýslu og eyðir trausti á opinberum stofnunum. Því skulum við öll taka höndum saman og vinna gegn spillingu hvar sem hún birtist. Þá kannski getum við unnið okkur inn traust þeirra 78% Íslendinga sem ekki treysta Alþingi í dag.