147. löggjafarþing — 2. fundur,  13. sept. 2017.

stefnuræða forsætisráðherra og umræður um hana.

[22:01]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Góðir landsmenn. Fallegt sumar er á hægu undanhaldi og dagarnir styttast. Mikil blessun væri það fyrir almenning í þessu landi ef það sama ætti við um núverandi ríkisstjórn, að dagar hennar færu líka að styttast og að þeim lyki sem fyrst.

Við höfum hlýtt á stefnuræðu forsætisráðherra þar sem hann horfir yfir sviðið úr iðandi blómabrekkunni. Vissulega árar vel fyrir suma, ekki alla. Nefndi ekki forsætisráðherra í ræðu sinni einkunnarorðin jafnvægi og framsýni?

Venjulegu fólki, fjölskyldum, börnum og öldruðum er gefið langt nef. Fátækt og húsnæðisskortur er viðvarandi. Skyldi ríkja eitthvert jafnvægi í lífi þessa fólks? Hvers konar framsýni felst í því að draga úr möguleikum stórra hópa til samfélagsþátttöku? Ég nefni aldraða og þá sem hafa skerta starfsorku.

En er þetta ekki fulldjúpt í árinni tekið, er þetta ekki bara dæmigert minnihlutasvekkelsi?

Nei, frú forseti, því miður ekki. Nú, á einstöku velmegunarskeiði eftir mögur ár, þegar hægt er að rétta hlut þeirra sem höllum fæti standa sýnir það sig hvað hefur forgang. Ríkisstjórnin gumar af því að nú um áramót hefjist stórkostleg vegferð í þágu aldraðra sem muni á fimm ára tímabili enda með 100.000 kr. frítekjumarki. Ríkisstjórnin ætti að hafa dug í sér og hækka þetta án tafar að algjöru lágmarki. Reynsla og geta þessa hóps er stórkostlega vanmetin. Við þurfum á öllum vinnufúsum höndum að halda.

Þessa ríkisstjórn skortir tengsl við almenning sem upplifir á eigin skinni félagslegt óréttlæti, ósanngirni og mismunun, barnafjölskyldurnar, þær einingar sem við leggjum allt okkar traust á, framtíð Íslands. Þar hefur íhaldið í tveimur ríkisstjórnum gengið fram af einbeittri hörku og skert stuðning við börn. Hverfandi hópur nýtur nú barnabóta og húsnæðisbóta og enn eru vaxtabætur stórlækkaðar. Hvernig rímar þetta við orð forsætisráðherra í kvöld um mikilvægi þess að hlúa vel að börnum og komandi kynslóð? Rótin er stefna ríkisstjórnarinnar undir gamalkunnu ægivaldi Sjálfstæðisflokksins. Þeim finnst þetta í lagi. Það finnst okkur í Samfylkingunni ekki og við krefjumst þess að hlutur barnafólks verði réttur og að allar barnafjölskyldur njóti barnabóta, betra atlætis.

Það er sama hvar borið er niður í velferðarmálum. Gammar sölsa undir sig heilbrigðiskerfið, líta á þjónustuna sem rífandi bisness, sem hann sannarlega getur verið í höndum gróðaafla. Tekjurnar eru öruggar, ríkið borgar fyrir hvert viðvik og viðskiptahópurinn er stór. Áhættan er lítil. Opinberar stofnanir sem þegar eru á heljarþröm eiga hins vegar ekki möguleika og búa við áframhaldandi fjársvelti. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu blasir ekki bara við alvarleg staða hjá sjúkrahúsum og heilbrigðisstofnunum, þær molna niður.

Einkageirinn svífur hins vegar seglum þöndum. Sjúkratryggingar Íslands borga, sú stofnun fer endurtekið fram úr fjárlögum, átölulítið.

Frú forseti. Góðir landsmenn. Einhver kann að spyrja: Hvernig er hægt að vera með svona mikla ólund á svona fallegu síðsumarskvöldi? Þetta er bara ekki ólund, þessi veruleiki blasir við þúsundum Íslendinga. Við jafnaðarmenn getum ekki unað þessu hrópandi misrétti. Þetta snýst um stjórnmál, hvernig komið er. Fátækt á Íslandi er afleiðing pólitískra ákvarðana. Á því ber Sjálfstæðisflokkurinn ábyrgð öðrum fremur. Þessu er hægt að snúa við og skapa samfélag þar sem enginn þarf að kvíða morgundeginum, hvort til sé matur og föt. Það þarf hins vegar vilja og aðra sýn en þá sem núverandi ríkisstjórn hefur.

Góðir landsmenn. Við eigum að standa vörð og vera jákvæð í garð landsbyggðar sem vill eflast á eigin forsendum. Við eigum að styðja endursköpun okkar mikilvægu matvælaframleiðslu í landbúnaði og sömuleiðis nýjar atvinnugreinar í sátt við umhverfið. Ónumin lönd eru í ferðaþjónustu. Í innviðauppbyggingu vega stórbættar samgöngur á landsbyggðinni þyngst en þetta eru afgangsstærðir hjá ríkisstjórninni.

Við höfum því miður orðið vitni að því, í svo mörgu, að litlar efndir fylgja orðum. Þetta er ríkisstjórn öfugmæla. Gefum því gaum hvað ríkisstjórnin segist vera að gera, ætla að gera, lofar að gera. Fylgist með hvernig forgangsröðun er háttað, hvernig hún framkvæmir síðan. Það eru ekki velferðarmálin, ekki hagur barna eða umburðarlyndi og mannúð gagnvart fólki í neyð, innan lands eða utan. Þeir sem standa höllum fæti eru settir til hliðar. Þessu vill Samfylkingin, jafnaðarmannaflokkur Íslands, breyta. Það gerir ekki þessi ríkisstjórn. — Góðar stundir.