147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

tilkynning um mannabreytingar í nefndum.

[10:30]
Horfa

Forseti (Unnur Brá Konráðsdóttir):

Forseti vill tilkynna að honum hefur borist erindi frá þingflokki Pírata um mannaskipti í nefndum. Birgitta Jónsdóttir tekur sæti Gunnars Hrafns Jónssonar sem aðalmaður í allsherjar- og menntamálanefnd og Einar Brynjólfsson sæti Birgittu Jónsdóttur sem varamaður í sömu nefnd.

Smári McCarthy tekur sæti Evu Pandoru Baldursdóttur sem aðalmaður í atvinnuveganefnd og Einar Brynjólfsson sæti Halldóru Mogensen sem varamaður í sömu nefnd.

Eva Pandora Baldursdóttir tekur sæti Ástu Guðrúnar Helgadóttur sem varamaður í efnahags- og viðskiptanefnd.

Ásta Guðrún Helgadóttir tekur sæti Evu Pandoru Baldursdóttur sem varamaður í fjárlaganefnd.

Eva Pandora Baldursdóttir tekur sæti Birgittu Jónsdóttur sem aðalmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og Halldóra Mogensen sæti Smára McCarthys sem varamaður í sömu nefnd.

Birgitta Jónsdóttir tekur sæti Halldóru Mogensen sem varamaður í umhverfis- og samgöngunefnd.