147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[10:53]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er erfitt að tala um þessa meintu útgjaldaaukningu fyrr en við sjáum í raun hver lokastaðan 2017 er. Ég vænti þess að þar sem búið er að uppfæra fjárlögin 2018, til að taka tillit til þessara liða sem eru venjulega vanfjármagnaðir, verði héðan í frá auðveldara að bera saman frumvörp á milli ára þar sem ekki á að vera fjáraukafrumvarp og því um líkt.

Á bls. 95 er áhugaverð setning: „Brottfall nokkurra tekjustofna á undanförnum árum gerir það einnig að verkum að þunginn er orðinn mjög mikill á meginskattstofna eins og virðisaukaskatt, tekjuskatt einstaklinga og tryggingagjald. Það felur í sér að þegar um hægist í efnahagslífinu taka tekjurnar mun stærri dýfu en útgjöldin með tilheyrandi áhrifum á afkomuna til hins verra og skuldasöfnun hefst að nýju.“

Ég velti fyrir mér af hverju ríkisstjórnin tekur ekki mark á eigin ráðleggingum í þessu fjárlagafrumvarpi.