147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[11:02]
Horfa

Logi Einarsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Hæstv. ráðherra flækti nú svarið enn meira. Honum lætur kannski betur að starfa sem tryggingafræðingur og tala konkret um tölur en að fara á eitthvert heimspekilegt flug. En fyrst við erum komin þangað og hæstv. ráðherra og hæstv. forsætisráðherra töluðu mjög mikið og innblásið um framtíðina og hvernig við ættum að mæta henni — þó að hæstv. fjármálaráðherra hafi reyndar svarað því sjálfur að hann vissi ekki hvernig hún yrði. Það vitum við ekki. Við vitum að það verða miklar breytingar. Finnst ráðherra þetta metnaðarlitla plagg í menntamálum þegar gert er ráð fyrir litlum breytingum og svikum varðandi framhaldsskóla, allt of litlum fjármunum í háskóla og við erum enn hálfdrættingar á við Norðurlöndin, það er verið að skera niður í rannsóknum og vísindum, vera svarið við þeirri framtíð sem við vitum að við stöndum frammi fyrir?