147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[11:18]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er gott að skýra þetta aðeins nánar. Það er þessi sjálfkrafa aðhaldskrafa sem ég er að gagnrýna. Að sjálfsögðu erum við með ákveðna aðhaldskröfu sem er þá upplýst aðhaldskrafa, bara svo að við tökum umræðuna um hvort það eigi við á hverju málefnasviði og hverjum málaflokki fyrir sig. En þessi sjálfkrafa aðhaldskrafa gerir það að verkum að allt í einu verður niðurskurður á rannsóknum í rauninni um það magn sem sjálfkrafa er ætlast til. Sjálfkrafa, af hverju í ósköpunum?

Einnig vil ég bæta við fyrirspurn mína, andsvar mitt áðan, varðandi þessa athugasemd í fjárlagafrumvarpinu um að breikka skattstofnana sem er ekki verið að gera, það er einungis verið að hækka þá sem nú eru og við vitum að nokkrir hafa verið felldir út hérna á árum áður, hvort það sé ekki í rauninni nauðsyn að bregðast við því sem varað er við í fjárlagafrumvarpinu. Það hlýtur að koma til þess að við þurfum að breikka skattstofnana áður en eitthvað gerist eins og er lýst þarna, að við missum tekjur þegar fer að hægjast um.