fjárlög 2018.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Ég hef sagt það hér, og hef ekkert legið á því, að ég ætla ekki að gera lítið úr því að innheimta græna skatta, alls ekki. Hv. þingmaður veit það jafn vel og ég að við erum ekki að tala um skatta sem leggjast á alla jafnt, við viljum að tekjuskattskerfið sé jafnandi. Það hefur ekki gerst í tíð þessarar ríkisstjórnar og þetta eru fyrst og fremst álögur á landsbyggðina. Það finnst mér ekki vera byggðastefnulegt og ég get ekki tekið undir það að slíkt sé gert án þess að einhverjar mótvægisaðgerðir komi til. Fyrir utan það er verið að henda þessu hér út í kosmosið í nafni þess að það sé grænt, í nafni þess að koma eigi til móts við loftslagsmarkmið. Engar áætlanir liggja fyrir hjá þessari ríkisstjórn um þau mál. Það þarf líka að taka þetta í því samhengi.
Um útgjaldaþungann í þessu frumvarpi — það er ekki rétt hjá hv. þingmanni að hvergi megi skoða eða taka til — þá ræddi ég fyrst og fremst um grunnþjónustuna. Það er mikilvægt að hafa það í huga.