147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[11:33]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Nú vinnum við eftir lögum um opinber fjármál og fjöllum hér um fyrsta fjárlagafrumvarpið sem er byggt bæði á fjármálastefnu og fjármálaáætlun sem hægt er að taka mark á og hefur fengið undirbúning hjá ríkisstjórn og umfjöllun á Alþingi. Það verður þó að hafa í huga að þær aðstæður sem fjármálastefna og fjármálaáætlun voru unnar í voru eilítið óvenjulegar. Ríkisstjórnin fékk um það bil hálfu ári skemmri tíma til að leggja sitt mark á stefnu og áætlun. Bæði fjármálastefna og fjármálaáætlun báru þess merki eins og kom vel fram í umræðum á Alþingi í kringum þau mál.

Fjárlagafrumvarpið er hins vegar ekkert nýtt af nálinni. Ríkisstjórnin fékk allan þann tíma sem hægt er að fá til að skila því af sér. Munurinn á þessum fjárlögum og fyrri fjárlögum er að þetta er fyrsta fjárlagafrumvarpið sem er byggt á fjármálastefnu og fjármálaáætlun sem fóru alla leið í gegnum kerfið, fengu umsagnir fjármálaráðs og því um líkt. En til áminningar, þar sem þetta er allt nýtt, þá á fjármálastefnan að fjalla um þróun eigna og skulda opinberra aðila í heild til a.m.k. fimm ára. Fjármálaáætlunin á að fjalla um efnahagsþróun, setja markmið um þróun tekna, gjalda og skulda, og að lokum setja stefnu fyrir málefnasvið ríkissjóðs.

Bæði fjármálastefna og fjármálaáætlun eiga að fylgja grunngildum um sjálfbærni, varfærni, stöðugleika — sem nú til dags er í raun hæfnin til að aðlagast breytilegum aðstæðum að mínu mati — festu og síðan gagnsæi. Eins og kom vel fram í umræðum á Alþingi um fjármálastefnu og fjármálaáætlun voru þó nokkrar brotalamir þar á. Sérstaklega voru gerðar alvarlegar athugasemdir vegna skorts á gagnsæi.

Fjárlagafrumvarpið gerir aðeins betur. Að hluta til vegna þess að það er bara meiri reynsla á bak við fjárlagafrumvarpsgerð og efni þess. Þó hafa verið gerðar nokkrar meiri háttar breytingar sem þarf að taka tillit til við gerð fjárlaga. Það fyrsta er að það á ekki að vera neitt fjáraukalagafrumvarp. Samt á að leggja eitt slíkt fram í október samkvæmt þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Það skrifast einfaldlega á síðustu ríkisstjórn sem vanáætlaði ýmsa útgjaldaliði þrátt fyrir að vita betur. En í fjárlagafrumvarpi fyrir 2018 lítur út fyrir að búið sé að vinna vel að því að fjármagna þá fjárlagaliði sem ítrekað hafa verið vanáætlaðir á undanförnum árum. Nú fá þeir raunveruleikaleiðréttingu í fjárlagafrumvarpinu í stað þess að vera alltaf afgreiddir í fjáraukalögum þegar kemur í ljós að kostnaðarmatið var aftur rangt.

Þar ber hæst málefnasviðið lyf og lækningavörur sem er raunuppfært um 1,8 milljarða kr. og málefni hælisleitenda sem voru ekkert vanáætluð, þau voru vísvitandi undirfjármögnuð. Það er gott, gagnsæisins vegna, að þetta sé uppfært. Nú verður auðveldara að bera saman tölur á milli fjárlaga áður en ríkisreikningur er gefinn út. Það þarf ekki að púsla saman útgjöldum með fjárlögum, fjáraukalögum og jafnvel lokafjárlögum til að komast að því hvað eitthvað kostaði. Þessi raunveruleikaleiðrétting útskýrir dágóðan hluta þeirrar útgjaldabreytingar sem er á milli fjárlaga 2017 og fjárlaga 2018, sem er sögð vera rúmir 18 milljarðar. Eftir að búið er að taka tillit til þessara leiðréttinga er útgjaldaaukningin nær því að vera 11–12 milljarðar.

Önnur mikilvæg viðbót eru skýrslur ráðherra. Í lögum um opinber fjármál er kveðið á um mánaðarlegar, ársfjórðungslegar, árlegar og svo þriggja ára skýrslur. Ársfjórðungsskýrslurnar eru meira að segja tvær. Allar þessar skýrslur eiga að hjálpa okkur öllum, ekki bara þingmönnum, að fylgjast með því hvort framkvæmd fjárlaga sé á réttu róli og hvort stefnumótun til framtíðar sé á réttri braut. Fyrsta skýrslan sem vert er að nefna er mánaðarskýrsla A-hluta ríkissjóðs, gefin út af Fjársýslu ríkisins. Mjög fín skýrsla. Hægt er að fara yfir stöðu tekna og útgjalda ríkisins frá mánuði til mánaðar. Næsta skýrsla er ársfjórðungsskýrsla A-hluta. Hún er ekki til. Það næsta sem kemst því að vera sú skýrsla er minnisblað sem fjárlaganefnd fær. Hvað sem hver segir telst það að senda fjárlaganefnd minnisblað ekki vera „að birta skýrslu“, eins og segir í lögum um opinber fjármál. Minnisblaðið inniheldur ekki einu sinni allt sem á að vera í þeirri skýrslu. Ég er ekki einu sinni búinn að fá kynningu á þessu minnisblaði, ég veit bara að það var að berast og er kannski komið inn í skjalakerfi þingmanna.

Til viðbótar er hverjum ráðherra heimilt að veita tilfallandi styrki og framlög til verkefna sem gera skal grein fyrir í fylgiriti fjárlaga. Þar er að finna upplýsingar um skuldbindandi styrki og samninga en ekki tilfallandi styrki og framlög. Það vantar. Skamm, skamm.

Ársfjórðungslega skal ráðherra birta skýrslu þar sem borin er saman framvinda opinberra fjármála við markmið fjármálaáætlunar. Ég hef ekki fengið neina slíka skýrslu. Ég finn hana ekki þegar ég leita. Mér er sagt af þeim sem eru öllum hnútum kunnugir að ekkert sé til. Skamm, skamm aftur.

Að lokum eru tvær skýrslur sem er sagt að ekki sé kominn tími á enn þá. Annars vegar er það skýrsla sem gefa á út á þriggja ára fresti a.m.k. þar sem horft er fram á veginn og spáð fyrir um þróun ýmissa þátta samfélagsins til næstu áratuga. Hins vegar er það ársskýrsla ráðherra þar sem á að gera grein fyrir niðurstöðu útgjalda innan málefnasviða og málaflokka og hún borin saman við fjárheimildir fjárlaga. Tekið er sérstaklega fram að framsetning ársskýrslu skuli vera skýr og greinargóð. Það má vel vera að fjárlagafrumvarpið uppfylli eitthvað af skilyrðum ársskýrslunnar en það er hvorki skýrt né greinargott að leita í frumvarpinu né heldur er það skýrt og greinargott að ekki sé til nein sérstök skýrsla um þetta eins og á að vera. Þegar fólk fer að leita að þessari skýrslu er ekki það fyrsta sem því dettur í hug að leita í fjárlagafrumvarpinu. Skilaboðin sem ég fæ er að það eigi að gera hana á næsta ári. Ég hef ekki hugmynd um hvenær framtíðarskýrslan á að vera tilbúin en verð að gera athugasemdir við metnaðarleysið, að fresta þessum skýrslum. Það er í fyrsta lagi engin afsökun fyrir því að fresta ársskýrslunni. Það er allt sem segir manni að framtíðarskýrslan væri mjög gott gagn við gerð fjármálastefnu, fjármálaáætlunar og fjárlaga, jafnvel þótt hún væri ekki gefin út nema í smækkaðri mynd í fyrstu atrennu. Það mætti gera nýja og betri að ári. Það er a.m.k. á þriggja ára fresti sem þarf að gefa þetta út. En ég veit að fólk hefur lagt mjög mikið á sig við að koma öllu þessu til okkar og kann að meta afurðina. En ég væri ekki að sinna starfi mínu ef ég benti ekki á það sem vantaði. Þau skilaboð eru ekki endilega til ráðuneyta og stofnana. Það eru frekar skilaboð til okkar þingmanna að passa upp á að það sé hægt að sinna því starfi sem við eigum að sinna lögum samkvæmt.

Dettum nú í smá pólitík. Við eigum eftir að heyra kunnuglega frasa og slagorð eins og venjulega í umræðum um fjárlagafrumvarpið. Það er auðvelt að grípa til frasa og slagorða. Fólki líður vel þegar það heyrir það sem það kannast við. Eða kannski illa, eftir atvikum. En það er í raun enginn nær um hvað er í gangi. Raunveruleikinn frá mínum bæjardyrum séð er sorglegri en kunnuglegir frasar ná utan um. Í umræðum um fjármálastefnuna kom skýrt og greinilega í ljós að markmið ríkisstjórnarinnar var að greiða niður skuldir. Punktur. Í umræðum um fjármálaáætlun trúði heldur enginn á upphæðirnar sem voru settar fram og héldu að þær yrðu lagaðar í fjárlagafrumvarpinu, svipað og var gert fyrir árið 2017. Svo var ekki. Það er virðingarvert út af fyrir sig og er gríðarlega nauðsynlegur hluti af nýja fjárlagaferlinu að halda þeirri festu sem áætlun og stefna setja fram. En þetta þýðir bara eitt: Skuldir verða greiddar niður og ekkert annað.

Þegar ég segi „ekkert annað“ er það ekki hárnákvæmt. Það er pólitísk námundun hjá mér. Það sem ég meina er að smá peningum er hent í málefni aldraðra, kannski skiljanlega, það er öflugur kjósendahópur sem hefur margt gott til málanna að leggja og málstaður þeirra er réttmætur. En upphæðirnar sem hent er í málaflokkinn eru dropi í hafið, því miður. Það er ekki hægt að segja annað en að verið sé að friðþægja þá sem hafa, með réttu, hátt. Það sé verið að borga burtu óþægilega gagnrýni. Ef það væri einhver alvara með því að leysa vandamálin á þessu málefnasviði væri eitthvað að finna um það í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar. Það er ekkert.

Í anda heiðarleika þá finn ég að vísu eitt málefnasvið þar sem fjárlagafrumvarp og þingmálaskrá sýna einhverja stefnu og það er í málefnum öryrkja og fatlaðs fólks. Þar kemur t.d. loksins til framkvæmda samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks og NPA. Hér er hægt að segja: Loksins. En ekki mikið meira. Húrra fyrir að gera loksins það sem allir hefði líka gert a.m.k. jafn vel. Þetta átti að vera löngu klárað. Það eru formlegheit að þessi viðbót sé núna loksins að koma inn í fjárlög Ég ætla því að halda mig við að það líti út fyrir að með frumvarpinu sé verið að greiða niður skuldir og ekkert annað. Engin uppbygging, bara klórað í bakkann. Smá friðþæging. Bygging nýs meðferðarkjarna Landspítalans er ekki uppbygging, hún er lífsnauðsynleg lagfæring eftir niðurskurðinn í hruninu.

Við Píratar segjum að við verðum að fara í uppbyggingu eða eins og fjármálaráð benti á í áliti sínu; við verðum að gera ábatagreiningu á þeim verkefnum sem bíða til þess að hægt sé að taka ákvarðanir um forgangsröðun. Það er góðra gjalda vert að greiða niður skuldir og spara vaxtakostnað. En aðrar framkvæmdir gætu skilað jafnvel meiri ábata en sem nemur vaxtakostnaðinum. Við vitum bara ekki hverjar því greiningin er ekki til, en uppbygging í heilbrigðiskerfinu virðist augljós valkostur.

Við Píratar teljum að kostnaðurinn við að tefja nauðsynlega uppbyggingu geti orðið meiri en ágóðinn sem fæst af sparnaði vegna minni vaxtakostnaðar. Hver veit, að öllum líkindum þurfum við að taka lán fyrir uppbyggingunni þegar allt kemur til alls. Hver var þá afrakstur stefnunnar að borga niður skuldir yfirleitt?

Píratar lögðu upp leiðir fyrir kosningar til að auka tekjur ríkisins með því að fá sanngjarna greiðslu fyrir notkun á sameiginlegum auðlindum og nota þá upphæð í uppbyggingu, t.d. í heilbrigðiskerfinu. Þess vegna er mjög áhugavert að sjá ábendingar í fjárlagafrumvarpinu um að skattstofnar séu ekki nógu breiðir. Og það er merkilegt að þrátt fyrir að ríkisstjórnin segi að skattstofnarnir séu ekki nógu breiðir ætli hún ekki að gera neitt til að breikka þá og minnka álagið á meginskattstofnana, sem þá væri mögulegt að lækka á móti. Það væri t.d. hægt að setja eignarskatt með lögheimilispersónuafslætti upp á 100 milljónir. En stefnan er: Borga niður skuldir, ekkert annað.

Velkomin í 1. umr. fjárlaga 2018, hárlitun þar sem ekkert er látið líta út fyrir að vera eitthvað.