147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[11:54]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka þingmanninum þetta svar. Hann kom samt ekkert inn á það sem ég bað hann að gera, þ.e. að svara fólki í þessum byggðarlögum um það hvernig hugmyndir um verulegar tekjur af nýtingu sameiginlegra auðlinda eiga að birtast því fólki. Ég þekki fjárhæðina sem var í fjármálaáætlun og ég þekki upphæðina sem er í fjárlagafrumvarpinu. Við getum alveg deilt skoðunum á því að innheimtukerfið er gallað og nú er verið að innheimta veiðigjöld fyrir góð ár í sjávarútvegi akkúrat þegar verulega kreppir að. En ég heyrði ekki svarið sem ég var að fiska eftir.

Það er annað sem mig langar að biðja hv. þingmann um vegna setu hans í hv. fjárlaganefnd þar sem hann hefur lagt gjörva hönd á plóg. Mig langar mig að biðja hann að velta fyrir sér útgjöldunum og útgjaldaþunganum. Sömuleiðis spyr ég, eins og ég hef spurt aðra fjárlaganefndarmenn: Hvar mundi þingmaðurinn geta séð fyrir sé að við gætum skorið upp og endurskoðað útgjöld og lækkað þau?