fjárlög 2018.
Virðulegi forseti. Hv. þingmaður segir að það sé vandmeðfarið að fara með þann árangur sem náðst hefur. Ég ætla að leiðrétta það aðeins og segja að það sé í rauninni vandmeðfarið að klúðra þeim aðstæðum sem eru nú í gangi með þeirri öldu ferðamanna sem nú er, þegar makríllinn kom og þar fram eftir götunum, það er vandmeðfarið að klúðra þeim hagvexti sem hefur komið yfir okkur. En eins og bent er á í fjárlagafrumvarpinu að ef aðstæður eins og breiðari skattstofnar koma ekki til þegar hægjast fer um þá lendum við í vandræðum einmitt með t.d. skuldasöfnun sem virðist vera aðaláhersla og eina áhersla ríkisstjórnarinnar.
Nú langar mig til að snúa aðeins andsvari hv. þingmanns til mín áðan varðandi það að svara íbúum Snæfellsness, Vestfjarða, Þorlákshafnar og fleiri staða. Nú náðum við ákveðinni líffræðilegri sjálfbærni þegar kvótinn var settur á. Við náðum ákveðinni efnahagslegri hagræðingu þegar framsal var sett á kvóta þó að sú útfærsla hafi í rauninni brotið þriðja mikilvæga atriðið sem var samfélagsleg sjálfbærni þar sem kvóti fór að flytjast fram og til baka sem lagði heilar byggðir í rúst. Þess vegna skil ég ekki af hverju er verið að spyrja mig að því hvernig á að svara íbúum Snæfellsness og Vestfjarða þegar núverandi kerfi er að leggja byggðir hér og þar í rúst.
Ég talaði áðan í ræðu minni um hvernig við förum betur með skattfé. Ég tek undir þau orð hv. þingmanns. Til þess að vita það þá vantar okkur ýmsar upplýsingar eins og t.d. þær skýrslur sem er kveðið á um í lögum um opinber fjármál og við fáum ekki, þær vantar. Er Bjarni kannski með þær? Ég velti því fyrir mér, honum finnst svo gaman að vera með skýrslur.
Við getum illa svarað þeim spurningum hvernig og hvort við erum að fara vel með almannafé ef við fáum ekki góðar og gildar upplýsingar til baka um það hvernig fram vindur.
Mig langar aðeins til að varpa spurningunum til baka. Hvernig svarar hv. þingmaður íbúum Snæfellsness og Vestfjarða um sjálfbærni þeirra byggða? Hvar eru skýrslurnar?