147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[12:21]
Horfa

Haraldur Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég vil vegna upphafsorða hans í andsvarinu segja eftirfarandi þar sem hann fjallaði um að það yrði afrek að klúðra þessum árangri. Það er mjög auðvelt að klúðra þessum árangri. Það sem ég er að reyna að draga fram í ræðustól Alþingi við þessa fjárlagaumræðu, 1. umr. um fjárlög fyrir árið 2018, er að við eigum ekki síður að horfa til útgjaldahliðarinnar. Ég held og bara segi það að mér finnst við kannski vera að beita aðferðum þægindanna. Við erum lítið að rýna í það hvað við gerum, við setjum miklu minni fókus á það, ef ég má sletta, virðulegi forseti, hvernig við ráðstöfum peningunum og hvort við getum gert eitthvað betur.

Ég leyfði mér, virðulegi forseti, í andsvari við hv. þingmann áðan að biðja hann um einhverja mynd af því við íbúa sem búa við það að sjá fyrirtæki sín renna saman, samþjöppunina verða og störfin að hörfa. Ég var að reyna að lýsa því hver veruleikinn er. Hvaða svar á ég handa þessu fólki? Ég á það svar að ég get ekki séð fyrir mér að sú stefna sem hv. þingmaður talaði fyrir í ræðustólnum um að taka meira afgjald af nýtingu auðlindanna svari því með öðru en að herða á þeim vanda sem ég var að reyna að lýsa.