fjárlög 2018.
Virðulegi forseti. Ég þakka gott svar. Er þetta ekki bara status quo undanfarinna ára, með leyfi forseta, svo að ég fái aðeins að sletta á latínu? Hæstv. ríkisstjórn segist í orði vilja betra velferðarkerfi og betra menntakerfi, en á sama tíma horfum við fram á mótvægisaðgerðir sem eru niðurskurður upp á það sama og menn þykjast vera að veita í sama málaflokk. Ef við ætlum að byggja upp vinstra velferðarkerfi eða velferðarkerfi yfir höfuð, hvaða aðgerðir mundi hv. þingmaður vilja sjá? Hvernig getum við búið til sanngjarnara kerfi miðað við það sem lagt er upp með í fjárlögum fyrir 2018? Ég sé í raun og veru ekki mikla velferð þar.