147. löggjafarþing — 3. fundur,  14. sept. 2017.

fjárlög 2018.

1. mál
[14:15]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pírata, Birni Leví Gunnarssyni, sérstaklega fyrir að veita andsvar. Ég hélt að tilgangurinn með þessari umræðu væri að eiga orðaskipti um stefnur og strauma í fjárlagafrumvarpinu. Þegar settar eru fram ábendingar sem byggjast á rökum, sem byggjast á staðreyndum og hv. þingmenn meiri hlutans og hæstv. ráðherrar treysta sér ekki í það að ræða við mann um þær ábendingar, treysta sér ekki í að ræða t.d. staðhæfingar sem hér hafa verið settar fram um að verið sé að auka stórlega í nýsköpun og vísindi og rannsóknir sem standast ekki, þá finnst mér það dapurlegt. Þannig að ég þakka hv. þingmanni fyrir að treysta sér í að taka umræðuna.

Er þetta spurning um ólíkan skilning á orðum? Nei, ég held ekki, ekki bara. Í fyrsta lagi er það svo að ef við rækjum ekki þetta jöfnunarhlutverk og höfum tekjustofnana ekki fjölbreytta, þá er kerfið vanbúnara til að takast á við áföll. Það eru hin hagstjórnarlegu rök sem hafa kannski ekkert endilega neitt að gera með jöfnunarhlutverkið. Það snýst bara um að byrðunum sé dreift, ekkert endilega með réttlátari hætti heldur með víðtækari hætti, þannig að þegar utanaðkomandi sveiflur verða hafi það ekki jafn mikil áhrif á tekjur ríkisins. Það er númer eitt. Það er það sem ég var að lesa upp úr frumvarpi hæstv. ráðherra. Það er það sem var líka bent á í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, að ef við erum búin að fækka tekjustofnum þá er kerfið brothættara.

Síðan er það jöfnunarhlutverkið sjálft og það sem ég er að benda á er það sem við erum alls ekkert sammála um og hefur ekkert með orðaskilning að gera. Við erum kannski sammála um að lægstu tekjur eigi að njóta skattleysis eða vera sem mest undanþegnar skatti, það erum við sammála um. Við erum líka sammála um að launajöfnuður er tiltölulega mikill. Við getum ekkert andæft því. En við tökum ekki á misskiptingunni sem er í eignastöðu á landinu. Þar erum við ósammála. Það hefur ekkert með skilning orða að gera. Við erum bara ósammála.

Mér finnst ekki ganga upp að stjórnmálamenn leyfi sér að tala alltaf um jöfnunarhlut skattkerfisins en skilja eftir þann hluta myndarinnar sem lýtur að misskiptingu auðs og eigna eins og hún komi málinu ekki við. Ef við skoðum efnahagsþróun í heiminum í dag þá er það þar sem misskiptingin er að aukast, ekki í hefðbundnum launum.