fjárlög 2018.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir afar greinargott andsvar og gott að heyra að þessi greinargerð sé á leiðinni. Ég bíð spennt eftir að lesa hana og átta mig betur á hvernig þetta líti allt saman út. Gott að við erum líka sammála um greiningar á áhrifum eftir mismunandi landshlutum.
Mig langar að nýta tækifærið fyrst hæstv. ráðherra var svo almennilegur að koma í andsvar við mig og spyrja hann út í skoðun hans á því sem við ræddum hér rétt áðan, um aukna samþættingu á gerð samgönguáætlunar og fjármálaáætlunar, og einnig þær fyrirhuguðu skattahækkanir á eldsneyti sem birtast í fjárlagafrumvarpinu, hvort gerð hafi verið ítarleg greining á áhrifum þessara hækkana. Við vitum t.d. að þetta mun hafa áhrif á vísitöluna, mun hafa áhrif á verðtryggð lán, mun skerða kaupmátt fólks. Ég hef farið yfir þetta nú þegar í tveimur ræðum og myndi gjarnan vilja eiga samtal um þetta, hvaða áhrif við erum að tala um af þessum hækkunum og hvort greining liggi fyrir. Því að þetta er stórmál og þetta er aðeins lítill hluti málsins.