fjárlög 2018.
Virðulegi forseti. Ég er með mjög einfalda lausn á því að vera í fararbroddi innan Evrópusambandsins. Ég held að hæstv. fjármálaráðherra muni líka sú hugmynd, en það er einfaldlega að ganga í Evrópusambandið. Þá gætum við verið með okkar þingmenn þar inni, (Gripið fram í.) á Evrópuþinginu. En þangað til, óháð því hvort við séum að fara að ganga í Evrópusambandið eða ekki, er Evrópska efnahagssvæðið okkar stærsta bandalag. Við verðum að taka því alvarlega. Við verðum líka að taka alvarlega þeirri auknu ógn sem steðjar að hinum vestræna heimi þegar kemur t.d. að Norður-Kóreu. Við þurfum að styrkja stöðu okkar í Washington líka. Við þurfum að styrkja sendiráðið þar til þess að fylgjast með málefnum sem Trump forseti er að ýta á eftir. Utanríkisþjónustan er beinagrind. Við þurfum að setja meira kjöt á hana út af því að Ísland og utanríkisþjónusta Íslands á betra skilið.