147. löggjafarþing — 6. fundur,  26. sept. 2017.

dagskrártillaga.

[13:33]
Horfa

Katrín Jakobsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Í gær lagði ég það til á fundi formanna flokkanna, í von um að hægt væri að sameinast um nýtt breytingarákvæði í stjórnarskrá, tillögu um sambærilegt ákvæði og það sem var í gildi á árunum 2013–2017, þ.e. að hægt væri að samþykkja stjórnarskrárbreytingar með gömlu aðferðinni, en til viðbótar kæmi bráðabirgðaákvæði þannig að hægt væri að samþykkja stjórnarskrárbreytingar með auknum meiri hluta á Alþingi og þeim þröskuldi að 25% atkvæðisbærra manna myndu ljá þeim atkvæði sitt í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Þessi tillaga byggir á ákvæði sem var hér í gildi en þó með hærri þátttökuþröskuldi á þeim tíma, þ.e. 40% þátttökuþröskuldi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún var tilraun til að miðla málum, skapa aukna samstöðu um stjórnarskrárbreytingar og allir flokkar á þingi nema Sjálfstæðisflokkurinn tóku mjög jákvætt í tillöguna. Það var mín von að við hefðum getað náð saman um þessa málamiðlun og náð þar með aukinni samstöðu um stjórnarskrárbreytingar til framtíðar. Það náðist ekki. Því er það mat okkar Vinstri grænna (Forseti hringir.) að það sé best að ljúka þinghaldi með þeim málum sem eru á þeirri dagskrá sem hefur verið útgefin og að þjóðin fái tækifæri til þess að endurnýja umboð sitt til þingmanna.