dagskrártillaga.
Frú forseti. Þegar ég sá frumvarpið sem dagskrártillagan snýst um velti ég fyrir mér hvort flutningsmenn hefðu gleymt síðustu sex árum því að hér er dustað rykið af tillögu stjórnlagaráðs frá árinu 2011. Síðan hefur margt gerst. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hefur t.d. skorið burt 2. mgr. tillögunnar (Gripið fram í.) sem er sem betur fer ekki hér, því er fylgt, enda var hún ólýðræðisleg hjáleið fram hjá þjóðinni. Af hverju er þá ekki brugðist við öðrum ábendingum stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar á þeim tíma eins og t.d. að hafa einhvern þátttökuþröskuld? Hann þarf ekki að vera 50% eins og hv. 1. flutningsmaður þessa máls lagði til á 141. löggjafarþingi. Hann þarf ekki heldur að vera 40% eins og varð raunin við þinglok 2013.
Þetta er ekkert einfalt mál sem þarf að klára með hraði. Það kom fram líka við afgreiðslu mála 2013. Þá voru allir fulltrúar í meiri hluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, þar á meðal fulltrúar Samfylkingarinnar, þar á meðal (Forseti hringir.) fulltrúar þess flokks sem hv. þm. Birgitta Jónsdóttir tilheyrði á þeim tíma, hvað svo sem hann hét nú aftur, sammála um að breytingarákvæðið þyrfti að vera erfitt, (Forseti hringir.) mátulega erfitt til að það væri hægt að breyta en nógu erfitt til þess að það væri ekki of auðvelt að breyta vegna þess að stjórnarskráin ver réttindi borgaranna fyrir ofríki meiri hlutans. (Forseti hringir.) Þess vegna þarf að gera þetta af yfirvegun og að vönduðu máli.