dagskrártillaga.
Frú forseti. Traust á Alþingi er í lágmarki. Ég biðla til þeirra hv. þingmanna sem tala um að við ætlum að gera þetta hérna á næsta kjörtímabili að hugsa sinn gang hvað það varðar. Þessu hefur nefnilega verið lofað áður og þetta er verið að svíkja aftur núna.
Hér leggjum við einfaldlega til einfalda breytingu þess efnis að þjóðin geti haft aðkomu að breytingu á stjórnarskrá, samfélagssáttmálanum sínum. Það er auðvelt að komast að niðurstöðu og margir höfðu komist að niðurstöðu um hvers konar þröskuldar væru æskilegir til að þetta mál færi í gegn. En þeir flokkar sem hér sitja voru ekki reiðubúnir að berjast fyrir þessu. Ef þeir eru til í að vera reiðubúnir að berjast með okkur fyrir að fá þetta mál á dagskrá erum við að sjálfsögðu til viðræðu um hvernig við tryggjum algjörlega lýðræðislegt ferli í kringum þetta mál.