147. löggjafarþing — 6. fundur, 26. sept. 2017.
dagskrártillaga.
Frú forseti. Að sjálfsögðu segi ég já við þeirri hófsemdartillögu að við fáum að ræða hér mál. Að sjálfsögðu segi ég já. En mér finnst frekar afhjúpandi hvernig nú hefur orðið til nýr meiri hluti á þinginu sem virðist standa gegn breytingum, gegn framtíðinni. Þetta kemur mér sannarlega á óvart. (Gripið fram í: Ekki rétt.) Þetta veldur mér miklum vonbrigðum. En svona er þetta. Við erum núna alla vega búin að sjá hvar skilin liggja milli framfaraflokka og fortíðarinnar. (Gripið fram í: Ekki rétt.)