útlendingar.
Herra forseti. Ef aðstæður hér væru eðlilegar værum við væntanlega með starfandi meiri hluta og ríkisstjórn og við værum með þinghald og gætum verið að vinna eftir þessum málum á vettvangi þingsins. En það er ekki svo því að hér hefur verið tilkynnt um þingrof og boðað til kosninga. Það þýðir að Alþingi getur ekki beitt sér í þeim málum ef alþingismenn, úr hvaða flokki sem þeir eru, telja að framkvæmd hvaða laga sem er endurspegli ekki vilja löggjafans. Hvað varðar vilja löggjafans þá er að sjálfsögðu rætt sérstaklega um börn og barnasáttmálann í lögum um útlendinga. Það hefur komið fram við skoðun á þessum málum og ég ætla ekki að fara að telja hér upp börn, einhver nöfn og kennitölur sem á að koma í skjól. Þetta snýst um einhvern fjölda barna sem eiga hugsanlega yfir höfði sér brottvísun úr landi.
Til að mynda hefur komið fram að kærunefnd útlendingamála telur að breyting sem gerð var á frumvarpi til laga um útlendinga hér í þinginu á sínum tíma, 2016, hafi haft áhrif á túlkun nefndarinnar á lögunum sem var sannarlega ekki vilji löggjafans og gerð er grein fyrir í greinargerð með þessu frumvarpi. Þá tel ég, og flutningsmenn málsins sömuleiðis, að ef við værum hér bara með eðlilegt þinghald eins og í eðlilegu árferði mundum við inna hæstv. ráðherra eftir þessu, fá hjá honum skýringar, gera tillögur. En við höfum ekki þau tæki núna því að við munum fara í kosningar 28. október. Því finnst okkur eðlilegt í ljósi þess að þing verður ekki starfandi og þingið getur ekki sinnt eðlilegu eftirlits- og aðhaldshlutverki að þetta bráðabirgðaákvæði sé sett þannig að nýtt þing geti tekið afstöðu til þess hvort framkvæmd laganna endurspegli vilja löggjafans.