147. löggjafarþing — 6. fundur,  26. sept. 2017.

útlendingar.

113. mál
[17:14]
Horfa

Svandís Svavarsdóttir (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég hef kannski ekki verið nógu skýr í mínum spurningum. Þær eru tvær.

Í fyrsta lagi spyr ég hvort ráðherrann sé enn þeirrar skoðunar sem hún var undir stefnuræðu forsætisráðherra þegar hún taldi að það væri málaflokknum fyrir bestu að beina honum aftur inn í farveg þverpólitískrar vinnu. Hún taldi það þá. Kannski er hún annarrar skoðunar núna þegar hún er laus úr viðjum ríkisstjórnarinnar og er komin í aðdraganda kosninga þar sem það kann að vera að harðlínutónar henti betur baklandi hæstv. ráðherra.

Ég vil í öðru lagi spyrja hvort ráðherrann styðji samkomulag síns eigin formanns um þinglok og þar með að þetta mál nái hér fram að ganga. Það væri ágætt að vita hvort hún treysti sér til þess að greiða því leið hér í gegnum þingið.