útlendingar.
Virðulegur forseti. Já, ég átti nú reyndar við það mál. Þetta orðalag, að „vippa sér“ í breytingar, bar á góma við umræðu um atkvæðagreiðsluna í því máli. Ég verð að fá að leiðrétta hv. þingmann líka. Mér skilst að það hafi nú ekki bara verið um það að ræða að endurvekja gamalt ákvæði sem var til bráðabirgða í stjórnarskránni heldur var þvert á móti um verulegar breytingar á því máli að ræða, sem hefði kallað á verulega þinglega meðferð. Þetta varðar kannski ekki það mál sem er núna hér til umræðu, en ég tel mig þá hafa svarað þessu.