útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég er mjög glöð að heyra það. Ég veit að hv. þingmaður hefur fylgt vel eftir hugmyndum sínum og þeim áhugasviðum sem hann hefur haft. Ég vona svo sannarlega að við sjáum breytingar í anda þess sem hv. þingmaður talar hér um. Við fundum það þegar við vorum að gera breytingar á síðasta kjörtímabili á útlendingalögunum að um bandorm var að ræða. Það var líka verið breyta lögum um atvinnuréttindi. Það var raunar sá hluti sem allir voru mest sammála um að gera breytingar á. Atvinnulífið fagnaði því sérstaklega að þarna væri verið að auka möguleika fólks með ákveðna þekkingu til að koma hingað til lands. Eins var verið að auka möguleika fyrir ungt fólk í sama skyni. Ég veit að utanríkisráðuneytið hefur verið að skoða það. Það var alla vega verið að skoða möguleika á því að skoða „working holiday“-samninga við Japan og Kína. Það er mjög leitt að mínu mati að ekki skuli hafa verið gerðir samningar eins og flest lönd í kringum okkur hafa gert. Ég held að það gefi öllum mjög mikið að hafa möguleika á því að fara annað að vinna. Þetta eru gagnkvæmir samningar og þá eiga Íslendingar möguleika á að fara til viðkomandi landa og fólk frá þessum löndum hefur möguleika á að koma hingað og kynnast Íslandi.
En í þessu fyrirkomulagi er um að ræða flóttamenn. Þetta er ný leið til þess að bjóða fólki, sem nú er í flóttamannabúðum í löndum þar sem er mikið álag, eins og t.d. Líbanon, að koma hingað til lands. Mjög víða í samfélaginu eru einstaklingar sem hafa mikla þörf og löngun til þess að hjálpa öðrum gætu tekið sig saman um að lofa að standa undir framfærslu þessara einstaklinga í þann tíma sem það tekur fyrir fólk að koma undir sig fótunum, fá vinnu og aðlagast íslensku samfélagi. Ég vona svo sannarlega að þetta verði alla vega ein af þeim breytingum á útlendingalögunum sem menn skoða á nýju kjörtímabili.