147. löggjafarþing — 6. fundur,  26. sept. 2017.

útlendingar.

113. mál
[18:41]
Horfa

forsætisráðherra (Bjarni Benediktsson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Mér var tjáð á sínum tíma að þetta væri staðan í Víðinesi, sem er ekki lengur starfrækt, að vegna öryggisástands á því svæði hefði lögreglan þurft að vera við öllu viðbúin. Þannig er það bara. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður vill að maður haldi því bara fyrir sjálfan sig eða hvort málið þoli einfaldlega ekki þá umræðu. Þannig er þetta bara.

Varðandi fjármunina sem fara í þennan málaflokk þá tók ég það fram í ræðu minni áðan að ég sé ekki eftir einni einustu krónu í þennan málaflokk sem fer í að koma fólki í skjól, sem fer í að sýna mannúðlega meðferð á umsóknum, hraða málsmeðferðinni, tryggja örugga aðlögun að samfélaginu, koma fólki til hjálpar í flóttamannabúðum, sækja þangað kvótaflóttafólk. Ekki sé ég eftir einni einustu krónu. Mér finnst að við Íslendingar höfum ríkum skyldum að gegna sem ein af þeim þjóðum þar sem landsframleiðsla á mann er hvað hæst í heiminum, á margan hátt svo mikil forréttindaþjóð að þegar kemur að flóttamannavandanum sem við horfum upp á í dag, þá eigum við að vera stolt af því að leggja okkar af mörkum.

Hins vegar þegar kemur að flóði tilefnislausra hælisumsókna frá öruggum ríkjum sem geta á skömmum tíma (Gripið fram í.) tekið upp starfskrafta í stjórnsýslunni þar sem við höfum vegna langrar málsmeðferðar séð á eftir alveg ómældum upphæðum í fæði og skjól í málum sem fyrirsjáanlegt var að myndu enda með brottvísun, þá sé ég eftir þeim fjármunum. Ég hefði frekar viljað sjá þá fara í fyrri hluta málsins, að hjálpa þessu fólki að aðlagast, að ýta undir íslenskukennslu, að hjálpa því að koma undir sig fótunum á Íslandi, í íslensku samfélagi. Það er um þetta sem lögin beinlínis snerust sem við sammæltumst um (Forseti hringir.) síðast, að hraða málsmeðferðinni þannig að hvorki væri tíma, fjármunum né mannréttindum fórnað við meðferð þessara mála.