147. löggjafarþing — 6. fundur,  26. sept. 2017.

útlendingar.

113. mál
[18:44]
Horfa

Kolbeinn Óttarsson Proppé (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að svara hreint út spurningum mínum. Það er athyglisvert að heyra hæstv. ráðherra tala um löngun hans til að setja aukna fjármuni í að hraða málsmeðferð. Það er ekki svo langt síðan að hér var lagt fram frumvarp til fjárlaga. Ég veit ekki betur en þar sé staðan sú að ekki er mætt þeim kröfum Útlendingastofnunar eða þörfum sem hún þarf til að hraða málsmeðferð. Af hverju birtist þessi löngun hæstv. ráðherra ekki í fjárlagavinnunni?

Hæstv. ráðherra spyr hvort hann eigi að þegja yfir ástandinu eins og honum sé sagt að það sé og hafi það verið fyrir einhverjum mánuðum en eins og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir kom hér inn á, þá er búið að loka umræddum stað sem hæstv. ráðherra vísaði í. Nei, ég ætlast ekki til að hæstv. ráðherra þegi yfir einhverju. En ég ætlast til að hæstv. ráðherra gæti að orðum sínu, að hann sé ekki að tala inn í sinn innsta kjarna stuðningshóps og ala á ótta að ástæðulausu.

Það kemur mér á óvart sem hæstv. ráðherra kom inn í sinni ræðu að það kom honum á óvart að einhverjir væru að velta því fyrir sér hvort þessum málum væri rétt fyrir komið hér á landi með því að beita alltaf fyrir sig Dyflinnarsamkomulagi, það virtist hafa komið hæstv. ráðherra á óvart. Ég man eftir að hafa heyrt umræðu um það á Alþingi, ekki bara á þessu kjörtímabili og því síðasta, heldur þar áður jafnvel líka. Þetta er búið að vera umræða sem er í gangi um nokkurn tíma. Hæstv. ráðherra hefur ekki fylgst nógu vel með ef þetta kemur honum á óvart.

Það vill svo til að Ísland er aldrei fyrsti viðkomustaður. Margir hafa því spurt sig að því hvort það sé rétt að Ísland beiti ætíð fyrir sig Dyflinnarsamkomulaginu, hver sé ábyrgð Íslands þegar flóttafólk er oft á tíðum að flýja átök, jafnvel átök sem Ísland hefur stutt og þar með talið hæstv. forsætisráðherra.